Friday, June 16, 2006

James the Driver

Vid vildum segja adeins fra honum James sem hefur sott okkur stundvislega a hverjum morgni her i Nairobi.

Hann var svolitid feiminn i byrjun, en kom svo allur til thegar vid forum ad grilla adeins i honum. Vid nadum ad fa upp ur honum med hverjum hann heldi i heimsmeistarakeppninni, hans lid er Brazilia. Vid forum tvi og keyptum handa honum bol og armband med Braziliu.

Thegar honum finnst vid vera ad tala of mikid fnussar hann eda haekkar bara i utvarpinu :)

Vid spurdum hann svo hvort hann myndi ekki sakna okkar, tha var hann fljotur ad svara "yeah, too much" med sma bros a vor. Hann sagdi lika (eftir sma pressu audvitad) ad vid vaerum skemmtilegri en norsku krakkarnir, hehe :) Ardis fekk hann svo til ad lofa ad koma vel fram vid kaerustuna lika eftir ad thau eru gift :)

Jaeja, nu thurfum vid ad drifa okkur nidureftir i ibudina ad pakka, thvi midur verda engar myndir i kvold,

kaer kvedja, Vaka, Ardis og Sigga