
Best að pósta inn mynd af mér hérna líka, held meira að segja að þessi mynd sé tekin sama kvöld og myndin af Siggu og Árdísi, á árshátíð Félags læknanema.
Annars er ég að jafna mig í upphandleggjunum, var svolítið aum báðu megin eftir 2 sprautur í sitthvorn handlegg. Enginn hiti farin að láta á sér kræla, vonum að hann sleppi því bara að mæta.
Kv. Vaka
Saturday, April 29, 2006
Vaka
Posted by
Vaka
at
2:28 PM
|
Sigríður og Árdís
Fyrir þá sem ekki vita þá erum þetta við - þe Sigríður 4.árs læknanemi og Árdís (ég) líka 4.árs nemi og svo er það auðvitað hún Vaka sem er að fara með okkur (til Kenya) - hún er á 3ja ári og hlýtur að fara setja mynd af sér hingað inn. Hún er mjög sæt og þarf ekkert að skammast sín, svo er líka frekar stutt síðan hún fór í klippingu....
Við Sigríður erum búnar að sitja saman hér hjá mér í kvöld (og Þorri og Snorri) og spjalla um strendur og safarí í Kenya og erum orðnar yfirspenntar!!!
Því nú er farið að styttast allsvakalega í brottför - rétt rúmur mánuður og bara nokkur próf sem þarf að klára svona upp á punt....
Við fórum í gær til Helga Guðbergs og hann sprautaði hinum ýmsu bóluefnum í okkur; gegn yellow fever, Havrix (lifrarbólga A), Typherix (taugaveik) og Mengevax (heilahimnubólga). Svo fengum við heim með okkur bóluefni gegn kóleru sem við eigum að drekka á fastandi maga, þurfum svo að fá annan skammt af því eftir ca. hálfan mánuð, þá fáum við líka DiTeKi Pol (barnaveiki, kíghósti, stífkrampi og lömunarveiki).
Á næstu 10 dögum getum við búist við því að fá allt að 40° hita í 1-3 daga, vegna bóluefnisins gegn yellow fever - en það er nú vonandi að við sleppum við það, því það kemst bara ekki fyrir í prógramminu....
Posted by
Árdis
at
12:29 AM
|
Thursday, April 27, 2006
Vá vá vá :)
Styrkjasöfnunin gengur eins og í lygasögu :)
KB-banki var að berast í hóp styrktaraðila, frábært alveg hreint. Það lýtur út fyrir að við munum eiga eftir góða summu til að kaupa eitthvað þarna úti, eitthvað svona stórt sem þörf er á.
Annars var ég að heyra frá honum Eyjólfi sem fór út í fyrra. Það er víst ekki enn búið að opna HIV-heilsugæsluna sem þau gáfu hluti í, því húseigandinn heimtar að þau flísaleggi gólfið áður en hann gerir við göt í veggjum og slíkt. Samtökin hafa því miður ekki efni á flísunum enn, svo ekki hefur tekist að opna heilsugæsluna. Vonandi verður hægt að finna lausn á þessu svo að stöðin komist í gagnið.
Glaxobóluefnin eru að berast í hús og ætlum við að fara með þau til Helga Guðbergs og fá ráðleggingar um hvernig er best að hafa röðina á þessum bólusetningum.
Set inn link á tannlæknanemana sem eru að fara út, þær fara út um miðjan maí og fara heim um svipað leyti og við komum.
Bless í bili,
Vaka
ps. það væri gaman ef þið sem kíkjið á síðuna mynduð skilja eftir komment svo við sjáum hverjir eru að skoða :)
Posted by
Vaka
at
2:59 PM
|
Wednesday, April 26, 2006
Allt að fara að gerast
Styrkjasöfnun gengur vel, bæði peningar og gjafir safnast á fullu.
Erum komnar með styrk frá Actavis group, Læknafélagi Íslands og svo ætlar Eirberg að gefa okkur einhverjar vörur, en við eigum eftir að tala betur við þá.
Loksins erum við að fá bóluefnin frá Glaxo, en það er búið að vera smá þraut að finna út hvernig má afgreiða lyfseðilsskyld lyf út ókeypis, en það er allt komið í góðan farveg og við getum sótt þau í dag í apótek LSH, með lyfseðli að sjálfsögðu.
Á morgun förum við svo til Helga Guðbergs á Heilsuverndarstöðina, en hann er víst algjör sérfræðingur í ferðamannabólusetningum, enda ekki hlaupið að því að fá tíma hjá honum. Þar fáum við Yellow fever bólusetninguna, en aðeins 3 menn á landinu hafa leyfi til að bólusetja gegn Yellow fever; Helgi, Haraldur Briem sóttvarnarlæknir og einn læknir á Akureyri. Svo þurfum við fá Havrix (lifrarbólga A, Typherix(taugaveik) og DiTeKi Pol (barnaveiki, kíghósti, stífkrampi og lömunarveiki) og malaríulyf. Við ætlum líka að taka með okkur alls konar sýklalyf, gegn öllum mögulegum sýkingum, niðurgangs-stopp-pillur, augndropa, semperduft og fleira, því betra er að vera við öllu búin.
Posted by
Vaka
at
12:12 PM
|
Wednesday, April 19, 2006
Fyrsta færslan
Við erum 3 stúlkur sem erum allar læknanemar við Háskóla Íslands,
Vaka á 3. ári
Árdís á 4. ári og
Sigga á 4. ári
og við erum að fara til Kenýa í byrjun júní, nánar tiltekið til Nairobi í "slummin". Þar eru reknar nokkrar heilsugæslustöðvar á vegum samtaka sem kallast Provide International, þar sem læknisþjónusta er ókeypis (en borga þarf lágmarksverð fyrir lyf).
Við erum byrjaðar að safna styrkjum til fararinnar, og erum nú þegar komnar með styrki frá Félagsstofnun stúdenta, VÍS, Landsneti og Atlantsskipum, auk þess fáum við bóluefni og lyf frá GlaxoSmithKleine. Auk þess höfum við sent út fleiri beiðnir, sem við bíðum spenntar eftir að fá svör við.
Í næstu viku erum við svo að fara til Helga Guðbergs á Barónsstígnum að fá bólusetningu gegn Yellow fever (mýgulusótt) og að fá leiðbeiningar um malaríuvarnir o.s.frv.
Posted by
Vaka
at
2:22 PM
|