Wednesday, April 19, 2006

Fyrsta færslan

Við erum 3 stúlkur sem erum allar læknanemar við Háskóla Íslands,
Vaka á 3. ári
Árdís á 4. ári og
Sigga á 4. ári

og við erum að fara til Kenýa í byrjun júní, nánar tiltekið til Nairobi í "slummin". Þar eru reknar nokkrar heilsugæslustöðvar á vegum samtaka sem kallast Provide International, þar sem læknisþjónusta er ókeypis (en borga þarf lágmarksverð fyrir lyf).

Við erum byrjaðar að safna styrkjum til fararinnar, og erum nú þegar komnar með styrki frá Félagsstofnun stúdenta, VÍS, Landsneti og Atlantsskipum, auk þess fáum við bóluefni og lyf frá GlaxoSmithKleine. Auk þess höfum við sent út fleiri beiðnir, sem við bíðum spenntar eftir að fá svör við.

Í næstu viku erum við svo að fara til Helga Guðbergs á Barónsstígnum að fá bólusetningu gegn Yellow fever (mýgulusótt) og að fá leiðbeiningar um malaríuvarnir o.s.frv.