Wednesday, April 26, 2006

Allt að fara að gerast

Styrkjasöfnun gengur vel, bæði peningar og gjafir safnast á fullu.
Erum komnar með styrk frá Actavis group, Læknafélagi Íslands og svo ætlar Eirberg að gefa okkur einhverjar vörur, en við eigum eftir að tala betur við þá.

Loksins erum við að fá bóluefnin frá Glaxo, en það er búið að vera smá þraut að finna út hvernig má afgreiða lyfseðilsskyld lyf út ókeypis, en það er allt komið í góðan farveg og við getum sótt þau í dag í apótek LSH, með lyfseðli að sjálfsögðu.

Á morgun förum við svo til Helga Guðbergs á Heilsuverndarstöðina, en hann er víst algjör sérfræðingur í ferðamannabólusetningum, enda ekki hlaupið að því að fá tíma hjá honum. Þar fáum við Yellow fever bólusetninguna, en aðeins 3 menn á landinu hafa leyfi til að bólusetja gegn Yellow fever; Helgi, Haraldur Briem sóttvarnarlæknir og einn læknir á Akureyri. Svo þurfum við fá Havrix (lifrarbólga A, Typherix(taugaveik) og DiTeKi Pol (barnaveiki, kíghósti, stífkrampi og lömunarveiki) og malaríulyf. Við ætlum líka að taka með okkur alls konar sýklalyf, gegn öllum mögulegum sýkingum, niðurgangs-stopp-pillur, augndropa, semperduft og fleira, því betra er að vera við öllu búin.