og enn styttist í förina :)
Í dag fórum við Sigga í leiðangur og sóttum gjafir frá fyrirtækjum sem við vorum búnar að tala við. Eirberg gaf okkur 4 kassa (1000 stk í hverjum) af einnota hönskum og einn poka með grisjum. Vistor gaf okkur svo 2 kassa fulla af góðgæti, m.a. hlustunarpípur, blóðsykursmæli, maska, svuntur, sloppa og sáraumbúðir. Síðan fórum við á Slysó þar sem safnað hafði verið fyrir okkur alls konar dóti, en við ætlum að fara aðeins yfir það og sjá hvað við teljum að hægt sé að nota í Kenýa. Erna tannlæknanemi hitti mig síðan, en hún komst að því þegar hún var úti, að á einni stöðinni er fullbúinn tannlæknastóll. Hann kemur hins vegar að litlum notum þar sem stöðin á ekkert tannfyllefni. Hún var nú ekki lengi að redda því og ætlar að senda með okkur fullt fullt af amalgami sem er silfurtannfylliefni.
Svo fór ég í apótek og keypti lyfin okkar, malaríulyf og ýmis sýklalyf, auk þess sem ég keypti augndropa og verkjalyf til öryggis.
Sem betur fer erum við búnar að fá aukna farangurheimild frá Icelandair, en sennilega verðum við að borga eitthvað hjá Kenya-Airlines þar sem þeir neituðu okkur um svoleiðis.
Jæja, ég ætti nú frekar að vera að skrifa ritgerð en að skrifa á bloggið, en ég mátti til með að segja frá þessu :)
Wednesday, May 31, 2006
Tíminn líður hratt
Posted by
Vaka
at
9:15 PM
|
Sunday, May 28, 2006
Minna en vika.....
þar til við förum út.
Já nú er þetta bara að bresta á. Næsta laugardag fljúgum við út, fyrst til London og svo til Nairobi, verðum komnar þangað á sunnudagsmorguninn. Vá, hlakka ekkert smá til og bara eitt smá próf eftir á miðvikudaginn.
Mikið af styrktarpeningnum er kominn í hús, en ekki allt samt og svo erum við líka búnar að fá e-r hjálpargögn gefins sem við förum með út, eigum samt eftir að sækja þau og pakka niður.
Vaka er að fara að flytja 3. árs verkefnið sitt í vikunni - þú rúllar því upp stelpa, gangi þér vel!
Já, þetta er ss bara allt að hafast hjá okkur stöllunum :)
Posted by
Árdis
at
7:05 PM
|
Monday, May 15, 2006
Það styttist

Já það styttist í ferðina, ég setti upp niðurteljara hér til hægri, en hann sést reyndar bara í Internet explorer hjá mér, ekki í Firefox. Samkvæmt teljaranum eru bara 17 dagar í að ævintýraför okkar hefjist!
Tannlæknastelpurnar eru komnar til Nairobi, það er hægt að fylgjast með þeim á www.blog.central.is/kenya2006
Svo rakst ég á aðra síðu hjá strák sem var hálft ár í Kenýa, en er kominn heim núna, ég skellti nokkrum sinnum upp úr þegar ég las síðuna hans. Verst að hann fékk einhverja eosinophil ormasýkingu í lungun og læknarnir hérna vissu ekkert hvað það var, heldur hafði hann samband við lækninn sinn í Kenya sem sagði honum hvaða lyf hann ætti að taka, en þau lyf fást ekki hér. Vona að hann fá þau og lagist drengurinn. Ef einhver hefur áhuga á að lesa bloggið hans, þá er það hér.
Annars erum við stelpurnar á fullu í skólanum, Árdís og Sigga eru að fara í próf í þessari viku, verklegu prófin í medicine og kirurgiu. Ég er á fullu að skrifa ritgerðina mína, mér miðar ágætlega en þarf samt að vera á undan áætlun þar sem við förum út áður en skilafresturinn rennur út, og því þarf ég að skila fyrr.
Myndin að ofan er af Kenýskum 100 skildinga seðli, sem samsvarar um 100 kr íslenskum. Við þurfum víst að hafa varann á, því mikið er um falsaða peninga og maður getur lent í klípu ef maður er vís að því að borga með þeim. Jakkinn sem kallinn er í á að vera hrufóttur og svo er eitthvert vatnsmerki líka sem á að aðgreina alvöru peninga frá fölsuðum.
Gangi ykkur vel í prófinu á morgun stelpur,
kveðja, Vaka :)
Posted by
Vaka
at
4:12 PM
|
Tuesday, May 09, 2006
halló......
já, það styttist alltaf meir og meir í Kenya ferðina okkar - ekki það að það sé mikill tími fyrir tilhlökkun eða undirbúning á þessum síðustu og verstu tímum.....
Því nú eru það blessuð prófin - og ekkert rosa mikill afgangs tími til umráða- eða það er bara enginn tími, reyndar....því verknámið er jú líka í fullum gangi frá 8-16, alla daga, alltaf!!!!
Fyrsta prófið mitt er einmitt eftir viku (16maí), en það er stöðvaprófið í medicin (verklegt og munnlegt) og svo er verklega kirurgiu prófið þann 19. maí - daginn eftir undankeppnina í Eurovision.
Í næstu viku er líka síðasta vikan í verknáminu - ég held ég eigi nú eftir að sakna spítalans soldið og veit ekki hvað ég á að gera við allan tímann sem vinnst þegar það verður búið!! Þá fáum við líka alveg heila viku fyrir skriflega medicin og bara ekkert verknám á meðan, maður verður nú bara í sundi og e-u afslappelsi þá.....
Jæja, þetta er komið gott af skólamálum í bili - verður snilld þegar það allt verður búið og bara Afríka sem bíður - maður hefur þó alltént e-ð að hlakka til, sem er kostur - mikill kostur:)
Lifið heil - og njótið veðurblíðunnar (þið sem hafið tíma til að vera úti...) og allir hinir njótið þess bara að horfa út um gluggann....
Posted by
Árdis
at
11:57 PM
|
Monday, May 01, 2006
Ferðamannaniðurgangur
- Um 50% ferðamanna til þróunarlanda fá niðurgang
- 5-10% ferðamanna fá niðurgang sem stendur í 2 vikur eða lengur
- 1-3% fá niðurgang sem stendur yfir í mánuð eða lengur
- Algengasta orsök er E. coli
- Aðalsmitleiðir eru menguð matvæli og/eða drykkjarvatn - (fecal/oral)
- Forvarnir:
- borða bara vel soðinn eða steiktan mat
- drekka bara vatn sem hefur verið soðið eða vatn úr flösku
- Mikilvægasta meðferðin er að fá nógan vökva
- Ekki er mælt með sýklalyfjum nema ef: hiti, blóðugur niðurgangur, gröftur eða áhættuhópar
- Stemmandi lyf (Loperamíð, Imodium)
- ekki nota ef hiti, blóð, slím í hægðum
- forðast notkun lengur en í 48 klst.
- getur dregið einkenni á langinn ef um sýkingu er að ræða
50% sem fá niðurgang - jess!! Ég ræð nú kannski við það, en ég veit ekki hvernig ég verð ef ég er ein af þessum 5-10% sem fá niðurgang í 2 vikur eða lengur!!! OG hvað þá ef við erum að tala um mánuð!!
Ég er ss í því núna að lesa um smitsjukdóma og rakst á þessar haldbæru og góðu upplýsingar hjá honum Magnúsi Gottfreðs smitlækni.
Margar gagnlegar upplýsingar að finna í glósunum hans. Hann kom td inn á það að margir ferðamenn taka áhættur í kynlífi - og nefnir mikilvægi þess að upplýsa ferðamenn um áhættu og forvarnir, það er því best að ég ræði við stelpurnar fljótlega, svo þær hagi sér nú skikkanlega.....og ég ætla líka að biðja þær um að vera ekki að standa í því að fá sér tattoo þarna úti......
Posted by
Árdis
at
10:44 PM
|