Monday, May 15, 2006

Það styttist



Já það styttist í ferðina, ég setti upp niðurteljara hér til hægri, en hann sést reyndar bara í Internet explorer hjá mér, ekki í Firefox. Samkvæmt teljaranum eru bara 17 dagar í að ævintýraför okkar hefjist!

Tannlæknastelpurnar eru komnar til Nairobi, það er hægt að fylgjast með þeim á www.blog.central.is/kenya2006

Svo rakst ég á aðra síðu hjá strák sem var hálft ár í Kenýa, en er kominn heim núna, ég skellti nokkrum sinnum upp úr þegar ég las síðuna hans. Verst að hann fékk einhverja eosinophil ormasýkingu í lungun og læknarnir hérna vissu ekkert hvað það var, heldur hafði hann samband við lækninn sinn í Kenya sem sagði honum hvaða lyf hann ætti að taka, en þau lyf fást ekki hér. Vona að hann fá þau og lagist drengurinn. Ef einhver hefur áhuga á að lesa bloggið hans, þá er það hér.

Annars erum við stelpurnar á fullu í skólanum, Árdís og Sigga eru að fara í próf í þessari viku, verklegu prófin í medicine og kirurgiu. Ég er á fullu að skrifa ritgerðina mína, mér miðar ágætlega en þarf samt að vera á undan áætlun þar sem við förum út áður en skilafresturinn rennur út, og því þarf ég að skila fyrr.

Myndin að ofan er af Kenýskum 100 skildinga seðli, sem samsvarar um 100 kr íslenskum. Við þurfum víst að hafa varann á, því mikið er um falsaða peninga og maður getur lent í klípu ef maður er vís að því að borga með þeim. Jakkinn sem kallinn er í á að vera hrufóttur og svo er eitthvert vatnsmerki líka sem á að aðgreina alvöru peninga frá fölsuðum.

Gangi ykkur vel í prófinu á morgun stelpur,
kveðja, Vaka :)