Wednesday, May 31, 2006

Tíminn líður hratt

og enn styttist í förina :)

Í dag fórum við Sigga í leiðangur og sóttum gjafir frá fyrirtækjum sem við vorum búnar að tala við. Eirberg gaf okkur 4 kassa (1000 stk í hverjum) af einnota hönskum og einn poka með grisjum. Vistor gaf okkur svo 2 kassa fulla af góðgæti, m.a. hlustunarpípur, blóðsykursmæli, maska, svuntur, sloppa og sáraumbúðir. Síðan fórum við á Slysó þar sem safnað hafði verið fyrir okkur alls konar dóti, en við ætlum að fara aðeins yfir það og sjá hvað við teljum að hægt sé að nota í Kenýa. Erna tannlæknanemi hitti mig síðan, en hún komst að því þegar hún var úti, að á einni stöðinni er fullbúinn tannlæknastóll. Hann kemur hins vegar að litlum notum þar sem stöðin á ekkert tannfyllefni. Hún var nú ekki lengi að redda því og ætlar að senda með okkur fullt fullt af amalgami sem er silfurtannfylliefni.
Svo fór ég í apótek og keypti lyfin okkar, malaríulyf og ýmis sýklalyf, auk þess sem ég keypti augndropa og verkjalyf til öryggis.
Sem betur fer erum við búnar að fá aukna farangurheimild frá Icelandair, en sennilega verðum við að borga eitthvað hjá Kenya-Airlines þar sem þeir neituðu okkur um svoleiðis.

Jæja, ég ætti nú frekar að vera að skrifa ritgerð en að skrifa á bloggið, en ég mátti til með að segja frá þessu :)