Monday, May 01, 2006

Ferðamannaniðurgangur

  • Um 50% ferðamanna til þróunarlanda fá niðurgang
  • 5-10% ferðamanna fá niðurgang sem stendur í 2 vikur eða lengur
  • 1-3% fá niðurgang sem stendur yfir í mánuð eða lengur
  • Algengasta orsök er E. coli
  • Aðalsmitleiðir eru menguð matvæli og/eða drykkjarvatn - (fecal/oral)
  • Forvarnir:
    • borða bara vel soðinn eða steiktan mat
    • drekka bara vatn sem hefur verið soðið eða vatn úr flösku
  • Mikilvægasta meðferðin er að fá nógan vökva
  • Ekki er mælt með sýklalyfjum nema ef: hiti, blóðugur niðurgangur, gröftur eða áhættuhópar
  • Stemmandi lyf (Loperamíð, Imodium)
    • ekki nota ef hiti, blóð, slím í hægðum
    • forðast notkun lengur en í 48 klst.
    • getur dregið einkenni á langinn ef um sýkingu er að ræða
Vá hvað ég er farin að hlakka til að fara út - og ekki skemma svona upplýsingar fyrir!!!
50% sem fá niðurgang - jess!! Ég ræð nú kannski við það, en ég veit ekki hvernig ég verð ef ég er ein af þessum 5-10% sem fá niðurgang í 2 vikur eða lengur!!! OG hvað þá ef við erum að tala um mánuð!!
Ég er ss í því núna að lesa um smitsjukdóma og rakst á þessar haldbæru og góðu upplýsingar hjá honum Magnúsi Gottfreðs smitlækni.
Margar gagnlegar upplýsingar að finna í glósunum hans. Hann kom td inn á það að margir ferðamenn taka áhættur í kynlífi - og nefnir mikilvægi þess að upplýsa ferðamenn um áhættu og forvarnir, það er því best að ég ræði við stelpurnar fljótlega, svo þær hagi sér nú skikkanlega.....og ég ætla líka að biðja þær um að vera ekki að standa í því að fá sér tattoo þarna úti......