Wednesday, June 07, 2006

godan daginn

vid bloggudum i gaer en tokst ekki ad posta tad, svo vid settum tad bara i commentin, en eg var ad skella tvi inn her fyrir nedan.
Nu er morgun og vid erum ad bida eftir bilstjoranum okkar til ad keyra okkur a heilsugaesluna. Stelpurnar eru byrjadar ad borda, tad eru ponnukokur med bonunum og mango, held reyndar ad vaka hafi byrjad adeins ad borda minn mat en tad er allt i lagi, eg borda ta bara hennar:)
Tad er mikil mengun her og vid komumst ad tvi i gaer ad vid erum med svart hor - mjog gaman...
Jaeja, eg aetla ad fara ad borda matinn minn, stelpurnar bidja ad heilsa :)

Tad er gott vedur i dag, sol og blida, en vid erum reyndar alltaf inni svo vid njotum tess litid, aetlum samt ad setjast ut eftir morgunmatinn og sola okkur tar til bilstjorinn kemur.

Ja, tad er rosa gaman ad fa komment fra ykkur sem erud buin ad vera ad lesa siduna takk fyrir tad:)

jaeja, nu eru tad ponnukokurnar:)

(ps. Thorri, segdu mommu tinni ad hun turfi ekki ad hafa ahyggjur af okkur, tad er passad vel upp a okkur her - vid erum ekki mikid einar a roltinu, og aldrei i myrkri:))

ok - nu eru tad ponnsurnar - kaerar kvedjur fra kenya:)

dagur 3

thetta verdur stutt i kvold, vid erum bunar ad bida alltof lengi eftir tolvunni og verdum ad fara fljotlega i hattinn...Forum i gaer og i dag a heilsugaeslurnar, i dag forum vid i Korogotcho, thar bua 300.000 manns a 2,5 ferkilometrum! Thetta er eitt fataekasta hverfi Nairobi. Vid vorum ad sprauta litlu bornin med mislinga- og Hib boluefni og vigta thau. Flest bornin litu nu vel ut og maedurnar lika, samt sem adur voru morg theirra of lett.Sidan forum vid a markadinn, thar sem okkur var nanast raent af solumonnum um leid og vid stigum ut ur bilnum. En eftir ca 30 min nadum vid ad hrista tha af okkur, eg keypti nokkrar styttur a pruttverdi en var samt sem adur svikin um ca 1500 kr. Ardis var alveg crazy i solumonnunum og vildi kaupa allt, vid Sigga thurftum alltaf ad draga hana i burtu. Sidan klarudum vid peningana okkar og notudum tha afsokun til ad losna, sogdumst thurfa ad fara i bankann og tha vildu their bara koma med okkur.Sidan fundum vid odyra minjagripabud, vid Hilton Arcade og keyptum fullt fullt af doti fyrir sama pening og 5 styttur a markadnum.Svo erum vid fluttar i ibud 200 m hedan, erum nuna ad far med Ken sem a stadinn thangad.Erum komnar med sima, hann er + 254 727 976959 - thetta er GSM-inn Goda nott, Vaka, Sigga og Ardis

Sunday, June 04, 2006

Ferdasaga og dagur nr 1


Ferdin gekk vel - flugum til London snemma i gaermorgun, vorum a heathrow i nokkra tima - tar til vid tokum naeturflugid til Nairobi. Flugid med Kenya airlines var svaka flott - flottasta flug sem vid hofum farid i, hvort sem tid truid tvi eda ekki!
Vid svafum svo bara gladar a oxlinni a hvorri annarri og atta klst voru fljotar ad lida - Vaka og Sigga svafu nu samt yfirleitt af ser matartimana sem voru svo gott sem a tveggja tima fresti - en eg (ardis) missti nu ekki ur einn einasta bita.....
vid vorum med einkasjonvarp eins og soldaninn af sebaba - og Sigga nytti tad i ad horfa a Harry potter (kommon...) !
Vid lentum svo i nairobi kl 6:30 a stadartima og tad gekk vel ad fa vegabrefsaritun tar til einn innfaeddur vildi ekki taka vid 100 dollara sedli af Voku sem var sleginn 1996 - sagdi ad hann vaeri too old.... rugludallar, en Vaka nadi ad sannfaera manninn a endanum.
Tollararnir hofdu svo engan ahuga a toskunum okkar og meira ad segja rontgenthettu kateterarnir okkar sluppu i gegn - thurftum reyndar ad borga 20 tusund i yfirvigt.
Vorum svo sottar a vollinn og forum beint a hotelid tar sem vel var tekid a moti okkur, breskt folk sem rekur stadinn og fullt af hvitingjum eins og okkur og svo vardhundurinn Rocky ser um ad passa okkur og svo er lika allt afgirt.
Vid komum okkur fyrir i fjolskylduherberginu og slagsmal um bestu rumin stodu stutt yfir - Vaka og Sigga buffudu mig og sendu mig i kompuna (sem sagt undir koju).
Vid logdum okkur svo i nokkra tima og roltum okkur svo bara nidur i midbae. Tar saum vid svertingjana streyma i storum stil alla i eina att - og vid eltum bara....
Endudum svo i midri thvogu i 5 tusund manna utimessu tar sem folk stod og lofadi Drottinn med handaupplyftingum og fyrirbaenum. Vid gatum ekki annad en tekid tatt i thvi og voktum oneytanlega mikla athygli, thvi eins og adur sagdi voru ca 5 tusund svertingjar og svo 3 hvitir a svaedinu og tad vorum vid!!!
Sigridur Karlsdottir tok svo Unni Birnu a tetta og kolfell fyrir framan alla brekkuna, og tad vakti lukku svo tad var gott:)
Eftir tetta roltum vid svo heim med svertingjunum, sem eru btw afskaplega fallegt folk - serstaklega bornin og konurnar, vid reynum ad lata karlana oareitta.
Tegar heim var komid svafum vid enn meira og fengum svo ljuffengt spaghetti bolognese sem er matreitt her.
Erum svo bara bunar ad sitja uti vid vardeldinn og reyna ad laera svahili og spjalla.
Hofum tad sem sagt mjog gott, erum saddar, bunar ad sofa nog og ekki enn komnar med drullu..
bidjum ad heilsa heim:)

KV. Ardis atvagl, sigga (aka unnur birna) og Vaka-vakandi-not!!! (hun er sko buin ad sofa lang mest og vid hofdum jafnvel ahyggjur i dag ad tse-tse flugan hefdi gefid henni svefnsyki.....)

Komnar til Nairobi

Vid erum komnar og allt gekk vel -erum bunar ad hvila okkur og sofa i nokkra tima og aetlum nu adeins ut ad ganga - svo kemur meiri ferdasaga a eftir:)
hafid tad gott oll somul

kv. fra Afriku:)

Saturday, June 03, 2006

Lagðar af stað

Nú eru aðeins nokkrir klukkutímar í brottför

Við viljum þakka öllum sem hafa lagt okkur lið kærlega fyrir hjálpina :) Allt dótið og allt sem við erum búnar að fá, það er alveg ótrúlegt :)

Við munum koma með blogg hingað við fyrsta tækifæri, það er víst tölva á gistiheimilinu okkar, svo það ætti ekki að vera mikið vandamál.

Jæja, best að fara að sofa aðeins...

kv. Vaka

Wednesday, May 31, 2006

Tíminn líður hratt

og enn styttist í förina :)

Í dag fórum við Sigga í leiðangur og sóttum gjafir frá fyrirtækjum sem við vorum búnar að tala við. Eirberg gaf okkur 4 kassa (1000 stk í hverjum) af einnota hönskum og einn poka með grisjum. Vistor gaf okkur svo 2 kassa fulla af góðgæti, m.a. hlustunarpípur, blóðsykursmæli, maska, svuntur, sloppa og sáraumbúðir. Síðan fórum við á Slysó þar sem safnað hafði verið fyrir okkur alls konar dóti, en við ætlum að fara aðeins yfir það og sjá hvað við teljum að hægt sé að nota í Kenýa. Erna tannlæknanemi hitti mig síðan, en hún komst að því þegar hún var úti, að á einni stöðinni er fullbúinn tannlæknastóll. Hann kemur hins vegar að litlum notum þar sem stöðin á ekkert tannfyllefni. Hún var nú ekki lengi að redda því og ætlar að senda með okkur fullt fullt af amalgami sem er silfurtannfylliefni.
Svo fór ég í apótek og keypti lyfin okkar, malaríulyf og ýmis sýklalyf, auk þess sem ég keypti augndropa og verkjalyf til öryggis.
Sem betur fer erum við búnar að fá aukna farangurheimild frá Icelandair, en sennilega verðum við að borga eitthvað hjá Kenya-Airlines þar sem þeir neituðu okkur um svoleiðis.

Jæja, ég ætti nú frekar að vera að skrifa ritgerð en að skrifa á bloggið, en ég mátti til með að segja frá þessu :)

Sunday, May 28, 2006

Minna en vika.....

þar til við förum út.
Já nú er þetta bara að bresta á. Næsta laugardag fljúgum við út, fyrst til London og svo til Nairobi, verðum komnar þangað á sunnudagsmorguninn. Vá, hlakka ekkert smá til og bara eitt smá próf eftir á miðvikudaginn.
Mikið af styrktarpeningnum er kominn í hús, en ekki allt samt og svo erum við líka búnar að fá e-r hjálpargögn gefins sem við förum með út, eigum samt eftir að sækja þau og pakka niður.

Vaka er að fara að flytja 3. árs verkefnið sitt í vikunni - þú rúllar því upp stelpa, gangi þér vel!
Já, þetta er ss bara allt að hafast hjá okkur stöllunum :)

Monday, May 15, 2006

Það styttist



Já það styttist í ferðina, ég setti upp niðurteljara hér til hægri, en hann sést reyndar bara í Internet explorer hjá mér, ekki í Firefox. Samkvæmt teljaranum eru bara 17 dagar í að ævintýraför okkar hefjist!

Tannlæknastelpurnar eru komnar til Nairobi, það er hægt að fylgjast með þeim á www.blog.central.is/kenya2006

Svo rakst ég á aðra síðu hjá strák sem var hálft ár í Kenýa, en er kominn heim núna, ég skellti nokkrum sinnum upp úr þegar ég las síðuna hans. Verst að hann fékk einhverja eosinophil ormasýkingu í lungun og læknarnir hérna vissu ekkert hvað það var, heldur hafði hann samband við lækninn sinn í Kenya sem sagði honum hvaða lyf hann ætti að taka, en þau lyf fást ekki hér. Vona að hann fá þau og lagist drengurinn. Ef einhver hefur áhuga á að lesa bloggið hans, þá er það hér.

Annars erum við stelpurnar á fullu í skólanum, Árdís og Sigga eru að fara í próf í þessari viku, verklegu prófin í medicine og kirurgiu. Ég er á fullu að skrifa ritgerðina mína, mér miðar ágætlega en þarf samt að vera á undan áætlun þar sem við förum út áður en skilafresturinn rennur út, og því þarf ég að skila fyrr.

Myndin að ofan er af Kenýskum 100 skildinga seðli, sem samsvarar um 100 kr íslenskum. Við þurfum víst að hafa varann á, því mikið er um falsaða peninga og maður getur lent í klípu ef maður er vís að því að borga með þeim. Jakkinn sem kallinn er í á að vera hrufóttur og svo er eitthvert vatnsmerki líka sem á að aðgreina alvöru peninga frá fölsuðum.

Gangi ykkur vel í prófinu á morgun stelpur,
kveðja, Vaka :)

Tuesday, May 09, 2006

halló......

já, það styttist alltaf meir og meir í Kenya ferðina okkar - ekki það að það sé mikill tími fyrir tilhlökkun eða undirbúning á þessum síðustu og verstu tímum.....
Því nú eru það blessuð prófin - og ekkert rosa mikill afgangs tími til umráða- eða það er bara enginn tími, reyndar....því verknámið er jú líka í fullum gangi frá 8-16, alla daga, alltaf!!!!
Fyrsta prófið mitt er einmitt eftir viku (16maí), en það er stöðvaprófið í medicin (verklegt og munnlegt) og svo er verklega kirurgiu prófið þann 19. maí - daginn eftir undankeppnina í Eurovision.
Í næstu viku er líka síðasta vikan í verknáminu - ég held ég eigi nú eftir að sakna spítalans soldið og veit ekki hvað ég á að gera við allan tímann sem vinnst þegar það verður búið!! Þá fáum við líka alveg heila viku fyrir skriflega medicin og bara ekkert verknám á meðan, maður verður nú bara í sundi og e-u afslappelsi þá.....
Jæja, þetta er komið gott af skólamálum í bili - verður snilld þegar það allt verður búið og bara Afríka sem bíður - maður hefur þó alltént e-ð að hlakka til, sem er kostur - mikill kostur:)

Lifið heil - og njótið veðurblíðunnar (þið sem hafið tíma til að vera úti...) og allir hinir njótið þess bara að horfa út um gluggann....

Monday, May 01, 2006

Ferðamannaniðurgangur

  • Um 50% ferðamanna til þróunarlanda fá niðurgang
  • 5-10% ferðamanna fá niðurgang sem stendur í 2 vikur eða lengur
  • 1-3% fá niðurgang sem stendur yfir í mánuð eða lengur
  • Algengasta orsök er E. coli
  • Aðalsmitleiðir eru menguð matvæli og/eða drykkjarvatn - (fecal/oral)
  • Forvarnir:
    • borða bara vel soðinn eða steiktan mat
    • drekka bara vatn sem hefur verið soðið eða vatn úr flösku
  • Mikilvægasta meðferðin er að fá nógan vökva
  • Ekki er mælt með sýklalyfjum nema ef: hiti, blóðugur niðurgangur, gröftur eða áhættuhópar
  • Stemmandi lyf (Loperamíð, Imodium)
    • ekki nota ef hiti, blóð, slím í hægðum
    • forðast notkun lengur en í 48 klst.
    • getur dregið einkenni á langinn ef um sýkingu er að ræða
Vá hvað ég er farin að hlakka til að fara út - og ekki skemma svona upplýsingar fyrir!!!
50% sem fá niðurgang - jess!! Ég ræð nú kannski við það, en ég veit ekki hvernig ég verð ef ég er ein af þessum 5-10% sem fá niðurgang í 2 vikur eða lengur!!! OG hvað þá ef við erum að tala um mánuð!!
Ég er ss í því núna að lesa um smitsjukdóma og rakst á þessar haldbæru og góðu upplýsingar hjá honum Magnúsi Gottfreðs smitlækni.
Margar gagnlegar upplýsingar að finna í glósunum hans. Hann kom td inn á það að margir ferðamenn taka áhættur í kynlífi - og nefnir mikilvægi þess að upplýsa ferðamenn um áhættu og forvarnir, það er því best að ég ræði við stelpurnar fljótlega, svo þær hagi sér nú skikkanlega.....og ég ætla líka að biðja þær um að vera ekki að standa í því að fá sér tattoo þarna úti......